Úthlutun úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar 2026
Styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar
Föstudaginn 17. apríl fór fram úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar við hátíðlega athöfn í Byggðasafninu á Garðskaga.
Hlutverk Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar er að styrkja menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ með fjárframlögum og efla þannig einstaklinga og félagasamtök til virkrar þátttöku í menningarlífi bæjarins.
Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir, formaður Ferða-, safna- og menningarráðs, stýrði dagskrá. Tónlistaratriði voru í höndum nemenda frá tónlistarskólunum í Suðurnesjabæ. Kristín Hrefna Ásmundsdóttir nemandi í Tónlistarskóla Sandgerðis spilaði á píanó og Elísa Tan Doro-on frá Tónlistarskólanum í Garði spilaði á píanó, munnhörpu og söng.
Við athöfnina voru styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna sem endurspegla gróskumikið menningarlíf í sveitarfélaginu. Í ár bárust 17 umsóknir og hljóta 11 umsóknaraðilar styrk að upphæð 2.080.000 krónur.
Þau sem hlutu styrk að þessu sinni voru:
- Byggðasafnið á Garðskaga fyrir verkefnið Fræðslusýning um almyrkva á sólu. Styrkveiting: 200.000 kr.
- Golfklúbbur Sandgerðis fyrir verkefnið Sýning í tilefni 40 ára afmælis GSG. Styrkveiting: 100.000 kr.
- Hilmar B. Bárðarson fyrir verkefnið Ár í Miðhúsum, heimildamynd. Styrkveiting: 250.000 kr.
- Hjalti Ö. Ólafsson fyrir verkefnið Ástarsaga í vitunum. Styrkveiting: 200.000 kr.
- Kaffi Gola fyrir verkefnið Tónleikar Kaffi Golu sumarið 2026. Styrkveiting: 180.000 kr.
- Kaffi Gola fyrir verkefnið Leppalúði gengur aftur. Styrkveiting: 300.000 kr.
- Knattspyrnufélagið Reynir fyrir verkefnið Sýning í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Styrkveiting: 100.000 kr.
- Knattspyrnufélagið Víðir fyrir verkefnið Sýning í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Styrkveiting: 100.000 kr.
- Sigurbjörg Hjálmarsdóttir fyrir verkefnið Inn með gleði og frið. Styrkveiting: 200.000 kr.
- Sigurbjörg Hjálmarsdóttir fyrir verkefnið Upptökur á tónlist við ljóð Ingibjargar Sigurðardóttur. Styrkveiting: 200.000 kr.
- Söngsveitin Víkingar fyrir verkefnið 30 ára starfstónleikar. Styrkveiting: 250.000 kr.
Í reglum sjóðsins kemur fram að markmið hans sé að efla menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ og styðja við öflugt menningarlíf með beinum fjárframlögum. Sjóðurinn fær árlegt framlag úr fjárhagsáætlun sveitarfélagsins en getur einnig tekið við gjöfum sem ætlaðar eru til að efla menningarlíf á svæðinu.
Styrkhöfum er óskað til hamingju með styrkina og góðs gengis með verkefnin sín. Þá eru íbúar og gestir Suðurnesjabæjar hvattir til þess að taka þátt í þeim fjölbreyttu viðburðum og verkefnum sem styrkþegar standa að.